Hrakhólar 12
Höfundar: meðlimir Halaleikhópsins
Leikstjóri: Rúnar Guðbrandsson
Hrakhólar 12 fjallar um íbúa fjölbýlishúss, ættingja þeirra og aðra óboðna gesti sem rápa inn og út — Söndru umsjónarmanni fasteigna til mikillar armæðu. Þegar Helena listakona flytur tímabundið inn til móður sinnar bankar fortíðin upp á ásamt nágrönnum sem vantar ýmist egg eða leiðsögn í lífinu.
Helena hefur lifað, upplifað, brunnið út og risið upp — eins og fuglinn Fönix, nema með betri húmor og verri svefn. Á meðan reynir Sandra að halda húsfundi um ástand hússins, Ásta bíður eftir einhverju óljósu og óvæntir gestir halda áfram að banka upp á. Persónudrifin satíra með alvarlegum undirtón.
